Hljóðverkfræðingur með yfir tíu ára reynslu af ráðgjöf, vöruþróun, hugbúnaðarþróun og rannsóknum. Sérþekking á hljóðvist innanhúss, hljóðeinangrun og þróun heyrnatóla og hátalara. Reynsla í þróun hugbúnaðar hjá ört vaxandi sprotafyrirtæki. Hef fylgt eftir vöruþróunarferli frá frumgerð til framleiðslu, ásamt því að veita hljóðvistarráðgjöf fyrir stór byggingarverkefni. Reynsla á sviði verkefnastjórnunar í hugbúnaðarfyrirtæki. Ég legg áherslu á góða samvinnu og þverfaglega nálgun í verkefnavinnu.